Heilbrigt kerfi?
Ráðherrar ríkisstjórnarinnar segja að aldrei hafi verið settir eins miklir peningar í heilbrigðiskerfið og nú. Og skilja ekkert í fólki að vera að kvarta undan skorti á þjónustu og löngum biðtíma. En þjónustan er ekki alls staðar góð og fólkið sem þarf á henni að halda finnur fyrir því sjálft á eigin skinni, sama hvað ráðherrarnir segja.
Heilbrigðisstarfsfólk segir að margir í þeirra röðum séu að bugast undan álagi en fjármálaráðherrann segir þeim bara að hlaupa hraðar. Ráðherrann veit ekkert vitlausara en að fjölga opinberu starfsfólki, þar með heilbrigðisstarfsfólki. Skilningsleysi á starfsaðstöðu heilbrigðisstarfsfólks og þörfum sjúklinga ásamt misræmi á milli landssvæða, er algjört.
Langir biðlistar
Vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins hafa biðlistar eftir nauðsynlegum aðgerðum lengst en biðlistar voru langir fyrir. Biðtími eftir geðheilbrigðisþjónustu hefur einnig lengst bæði hjá börnum og fullorðnum.
Flestir bíða eftir skurðaðgerðum vegna liðskipta á mjöðmum og hnjám en einnig eru biðlistar langir eftir aðgerðum á augasteini og brennsluaðgerð á hjarta. Lífsgæði fólksins sem bíður eftir aðgerðum daprast á biðtímanum og álag á það og aðstandendur þeirra getur skapað mikla erfiðleika, bæði líkamlega og andlega. Tæplega fjögur þúsund einstaklingar bíða nú eftir þessum skurðaðgerðum og flestir hafa beðið lengi.
Rúmlega eitt þúsund einstaklingar bíða eftir geðheilbrigðisþjónustu hjá LSH og vel á annað hundrað börn bíða eftir þjónustu á BUGL. Allir hljóta að sjá að við þetta ástand verður ekki unað.
Landsbyggðirnar eru einnig í vanda. Brýnt er að bregðast við vanda heilbrigðisstofnanna á vaxtasvæðum. Fjármagn til heilbrigðisstofnanna hefur ekki fylgt í kjölfar fjölgunar. Þar skera Suðurnesin og Árborg og nágrenni sig úr. Það hefur orðið til þess að íbúar þessara svæða hafa liðið fyrir ástandið. Að bæta úr þessari stöðu þolir enga bið.
Sveltistefna
Það er grátlegt að einu svör núverandi ráðherra við þessu alvarlega ástandi sé að aldrei hafi verið sett jafn mikið fé til heilbrigðisþjónustunnar og nú. Við blasir að nær öll viðbótin hefur farið í byggingu nýs Landspítala og aðrar fjárfestingar, launauppbætur og verðlagsbætur. Og heilbrigðisþjónustan sjálf er svelt með fjárskorti og manneklu.
Sumir flokkar segja að lausnin sé einkarekstur. Það megi setja aukna fjármuni til heilbrigðiskerfisins úr ríkissjóði ef þeir fara í einkarekstur. Einkarekstur getur ekki komið í staðinn fyrir trausta opinbera heilbrigðisþjónustu sem er öllum aðgengileg. Aldrei má minnsti vafi leika á því hvort hagsmunir sjúklinga eða rekstraraðila heilbrigðisþjónustu vegi þyngra.
Greinin birtist fyrst á vefnum visir.is 17. ágúst 2021