,,Sami rassinn undir þeim öllum"
Það var árið 2012 sem við sáum til lands í fjármálum ríkisins, gátum lokað fjárlagagatinu og hafið uppbyggingu eftir stórkostlegt efnahagshrun. Þegar ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur tók við 2009 voru stýrivextir 18% og verðbólgan líka um 18%. Og enginn vildi lána okkur nema alþjóða gjaldeyrissjóðurinn, ekki einu sinni hin Norðurlöndin. Þetta voru erfiðir tímar. Nú eru stýrivextirnir 1% og verðbólga 4,3%. Auðvelt er fyrir ríkið að fá ódýr lán.
Lærum af reynslunni
Sem fjármálaráðherra bar ég ábyrgð á samningu fjárlagafrumvarps ársins 2013. Bættur hagur barna var yfirskrift þess frumvarps. Barnabætur hækkuðu þá alls um 30%, fleiri fengu barnabætur og upphæðir hækkuðu. Áætlun var gerð um fríar tannlækningar barna og fyrstu skrefin tekin í þá átt og áætlun staðfest um 12 mánaða fæðingarorlof. Fjármagn til framhaldsskólanna var aukið og uppbygging hafin á heilbrigðisþjónustunni eftir mikinn niðurskurð.
En við fengum ekki að byggja upp í góðærinu. Það verkefni var falið Sjálfstæðisflokki og Framsókn og þeir flokkar slógu af allar okkar áætlanir nema fríar tannlækningar barna. Þær fengu að standa sem betur fer.
Ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar fékk í arf hallalaus fjárlög, lága vexti og verðbólgu, mikinn fjölda ferðamanna, makríl og lágt olíuverð. Þessa rausnarlegu meðgjöf nýtti sú stjórn ekki til innviðauppbyggingar á meðan slaki var enn í hagkerfinu og innviðaskuldin stendur enn. En þau lækkuðu veiðigjöldin sem útgerðarrisarnir borga af nýtingu þjóðarauðlindarinnar.
Sjónarhorn barna
Á mínum pólitíska ferli hef ég alltaf barist fyrir bættum hag barna. Ég var í aðstöðu til að láta verkin tala sem ráðherra og hef sem þingmaður lagt fram fjölda tillagna um þau mál. Það er mælikvarði á það hversu gott samfélag er hvernig búið er að börnum.
Betri kjör barnafjölskyldna eru mikilvæg en líka að afinn og amman búi við mannsæmandi kjör og komið sé fram við þau af virðingu á efri árum. Að mamman og pabbinn hafi vinnu, fjölskyldan þak yfir höfuðið á viðráðanlegu verði og heilbrigðisþjónustan sé fyrir alla. Öll börn hafi sömu tækifæri til að þroskast, skólarnir mæti þeim þar sem þau eru og þau séu varin fyrir hvers kyns ofbeldi og vanrækslu. Samfélagið sé öruggt og gott með löggæslu, eftirliti, neytendavernd og sókn gegn loftlagsvá af mannavöldum. Þetta eru allt grundvallaratriði.
Og ég mun halda áfram að vinna að hag barna og horfa á pólitíkina út frá víðu sjónarhorni þeirra.
Það er ekki sami rassinn undir öllum stjórnmálamönnum. Það sýna dæmin með skýrum hætti. Það skiptir máli hverjir stjórna.
Kjósum Samfylkinguna 25. september. Það borgar sig.
Greinin birtist fyrst á vefnum visir.is 20. ágúst 2021