Samherjaskjölin og spillingin
Því er það viðfangsefni okkar stjórnmálamanna að kerfið sem sett er í kringum nýtingu þessara auðlinda, bæði hvað varðar úthlutun nýtingaleyfa sem og verðlagningu þeirra, verði sem gagnsæjast og byggi á jafnræði. Pólitískar ákvarðanir um veiðigjöld og úthlutanir bjóða spillingunni heim.
Þróunarsamvinnustofnun Íslands kom að uppbyggingu úthlutunar og gjaldtökukerfis fyrir hrossamakríl í Namibíu á sínum tíma. Útfærslan var markaðstengd til þess að draga úr spillingarhættunni. Það kerfi virðist hafa verið aflagt um það leyti sem Samherji mætti á staðinn og stjórnmálamenn í Namibíu fengu aukin völd við úthlutun.
Í þessu ljósi eigum við að líta á tillögu íslenska sjávarútvegsráðherrans frá því í vor um að afhenda makrílkvótann ótímabundið til hagsbóta fyrir stærstu útgerðirnar, líkt og Samherja. Bar sú tillaga vott um að ráðherrann „segi sig frá“ öllu sem varðar Samherja?
Og í þessu ljósi eigum við að líta á allar ákvarðanir sem stjórnvöld hafa tekið um nýtingarleyfi og auðlindagjöld og gera breytingar til að takmarka spillingarhættuna.
Við í Samfylkingunni höfum í nær tvo áratugi, eða allt frá stofnun flokksins, lagt fram tillögur um sanngjarnara og gegnsærra kerfi.
Það er ákveðin ögurstund og vendipunktur í umræðum um auðlindanýtinguna nú þegar spillingarhættan verður svo sýnileg með Samherjaskjölunum. Nýtum þessar ömurlegu fréttir og uppljóstranir til gagns kæru lesendur.
Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu